Nokia 5700 XpressMusic - Læsingarnúmer

background image

Læsingarnúmer

Læsingarnúmerið (5 tölustafir) hindrar að síminn sé notaður í leyfisleysi. Forstillta
númerið er 12345. Breyttu númerinu, og geymdu nýja númerið á leyndum og
öruggum stað sem er fjarri símanum. Í Öryggi á bls. 75 er fjallað um það hvernig
númerinu er breytt og síminn stilltur þannig að hann biðji um númerið.

Ef þú slærð inn rangt læsingarnúmer fimm sinnum í röð hundsar síminn frekari
innslátt þess. Bíddu í fimm mínútur og sláðu númerið inn aftur.

Þegar tækið er læst kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað
í tækið.