
Stillingar fyrir tónlistarverslun
Mismunandi er hvaða stillingar eru í boði fyrir tónlistarverslunina og hvernig þær
líta út. Stillingarnar geta einnig verið fyrirfram valdar og þá er ekki hægt að
breyta þeim.
Það kann að vera hægt að breyta stillingum í tónlistarversluninni með því að velja
Valkostir
>
Stillingar
.

49
Ef stillingarnar eru ekki fyrirfram valdar þarftu e.t.v. að slá inn eftirfarandi
stillingar:
Veffang
— Þú þarft að tilgreina veffang tónlistarverslunarinnar.
Sjálfg. aðg.stað.
— Veldu aðgangsstaðinn sem á að nota þegar tengingu við
tónlistarverslunina er komið á.
Notandanafn
— Sláðu inn notandanafn þitt í tónlistarversluninni.
Lykilorð
— Sláðu inn lykilorð þitt í tónlistarversluninni.
Ef reitirnir fyrir
Notandanafn
og
Lykilorð
eru ekki fylltir út þarftu e.t.v. að slá þau
inn við innskráningu.