■ Spilunarlistar
Til að skoða og vinna með lagalista skaltu velja
Spilunarlistar
á tónlistarvalmyndinni. Eftirfarandi spilunarlistar birtast sjálfvirkt:
Mest spiluðu lögin
,
Nýlega spiluð lög
og
Nýlegar viðbætur
.
Til að sjá upplýsingar um spilunarlistann skaltu velja
Valkostir
>
Um spilunarlista
.
48
Spilunarlisti búinn til
1. Veldu
Valkostir
>
Búa til spilunarlista
.
2. Sláðu inn heiti fyrir spilunarlistann og veldu
Í lagi
.
3. Veldu flytjendur til að finna lögin sem þú vilt setja á spilunarlistann.
Ýttu á skruntakkann til að setja inn hluti. Til að birta lagalistann undir nafni
flytjanda skaltu skruna til hægri. Skrunaðu til vinstri til að fela lagalistann.
4. Þegar valinu er lokið skaltu velja
Lokið
. Ef samhæft minniskort er í tækinu
vistast spilunarlistinn á minniskortinu.
Til að bæta lögum við seinna skaltu velja
Valkostir
>
Bæta við lögum
þegar
spilunarlistinn er skoðaður.
Til að bæta lögum, plötum, flytjendum, stefnum eða lagahöfundum við
spilunarlista, af ýmsum skjámyndum tónlistarvalmyndarinnar, skaltu velja atriðin
og síðan
Valkostir
>
Bæta á spilunarlista
>
Vistaður spilunarlisti
eða
Nýr
spilunarlisti
.
Til að fjarlægja lag af spilunarlista skaltu velja
Valkostir
>
Taka af spilunarlista
.
Laginu er ekki eytt úr símanum, heldur aðeins af spilunarlistanum.
Til að endurraða lögum á spilunarlista skaltu skruna að laginu sem á að færa og
velja
Valkostir
>
Uppröðun
>
Grípa
, skrunaðu síðan á nýjan stað og veldu
Sleppa
.