Myndum breytt
Til að breyta myndum í
Gallerí
skaltu skruna að myndinni og velja
Valkostir
>
Breyta
.
Til að klippa mynd skaltu velja
Valkostir
>
Nota áhrif
>
Skurður
. Mynd er klippt
handvirkt með því að velja
Handvirkt
eða tiltekið hlutfall af listanum. Ef þú velur
Handvirkt
birtist kross efst í vinstra horni myndarinnar. Skrunaðu til að velja
svæðið sem á að klippa og veldu
Festa
. Annar kross birtist neðst í hægra horninu.
Veldu aftur svæðið sem á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta svæðið skaltu velja
Til baka
. Þau svæði sem eru valin mynda ferhyrning utan um þá mynd sem kemur
út úr klippingunni.
Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri þar sem á að klippa. Notaðu
skruntakkann til að stilla auðkennda svæðið. Hægt er að frysta valið svæði með
því að ýta á skruntakkann. Notaðu skruntakkann til að færa til svæðið innan
myndarinnar. Ýttu á skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa.
44
Hægt er að minnka rauðan lit í augum með því að velja
Valkostir
>
Nota áhrif
>
Laga rauð augu
. Færðu krossinn að auganu og ýttu á skruntakkann. Lykkja birtist
á skjánum. Skrunaðu upp, niður, til vinstri og til hægri til að breyta stærð
lykkjunnar svo hún passi við augað. Ýttu á skruntakkann til að minnka rauða
litinn.
Flýtivísar í myndvinnslu:
• Til að skoða mynd í fullri skjástærð skaltu ýta á *. Ýttu aftur á * til að fara aftur
í venjulegan skjá.
• Ýttu á 3 eða 1 til að snúa mynd réttsælis eða rangsælis.
• Ýttu á 5 eða 0 til að súmma að eða frá.
• Flett er um súmmaða mynd með því að skruna upp, niður, til vinstri eða hægri.