Nokia 5700 XpressMusic - Hreyfimyndir og kyrrmyndir skoðaðar

background image

Hreyfimyndir og kyrrmyndir skoðaðar

Þegar verið er að skoða hreyfimyndir eða kyrrmyndir í símastöðu er hægt að gera
hreyfimyndastöðuna virka. Snúðu neðri hluta símans um 90 gráður til vinstri
þannig að myndavélarlinsan beinist frá þér. Í hreyfimyndastöðu fer skjárinn
sjálfvirkt í landslagsstillingu og það er hægt að leggja hann frá sér, t.d. á borð,
og horfa á myndina.

Til að sjá næstu kyrrmynd eða þá fyrri skaltu ýta á spóla áfram eða til baka
takkann.

Til að spóla hreyfimynd hratt áfram eða til baka skaltu ýta á spóla áfram eða til
baka-takkann. Til að spila hreyfimynd eða gera hlé á spilun skaltu ýta á spila/hlé/
stöðva-takkann. Til að stöðva hreyfimyndina skaltu halda spila/hlé/
stöðva-takkanum inni.