■ Símanúmer tengt við hraðvalstakka
Hraðval er leið til að hringja á fljótlegan hátt í númer sem þú hringir oft í. Hægt er
að tengja símanúmer við hraðvalstakkana 2 til 9. Tölustafurinn 1 er frátekinn fyrir
talhólfið. Gera þarf hraðvalið virkt til að hægt sé að nota það. Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Símstill.
>
Sími
>
Símtöl
>
Hraðval
>
Virkt
til að gera hraðval virkt.
1. Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
og tengilið.
2. Skrunaðu að númeri og veldu
Valkostir
>
Skrá hraðval
. Skrunaðu að tiltekna
hraðvalstakkanum og veldu
Á númer
. Þegar þú ferð til baka í tengiliðaskjáinn
sérðu hvar
birtist við hlið númersins.
Til að hringja í tengiliðinn með því að nota hraðvalið skaltu styðja
á hraðvalstakkann og hringitakkann eða halda hraðvalstakkanum niðri í biðstöðu.