
Stillingar fyrir margmiðlunarboð
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
og úr
eftirfarandi valkostum:
Stærð myndar
— Tilgreindu stærð myndar í margmiðlunarboðum. Ef þú velur
Upprunaleg
er myndin ekki kvörðuð.
MMS-gerð
— Ef þú velur
Með viðvörunum
lætur síminn þig vita ef þú reynir að
senda skilaboð sem ekki er víst að viðtökutæki styðji. Til að láta símann hindra
sendingu óstuddra skilaboða skaltu velja
Takmörkuð
. Ef þú velur
Allt
er hægt að
búa til skilaboð en ekki er víst að viðtakandinn geti skoðað skilaboðin.
Aðg.staður í notkun
— Veldu hvaða aðgangsstaður er notaður sem tenging fyrir
margmiðlunarboð.
Móttaka margmiðl.
— Til að taka við margmiðlunarboðum á heimakerfi skaltu
velja
Sjálfv. í heimakerfi
. Til að taka alltaf við margmiðlunarboðum skaltu velja
Alltaf sjálfvirk
. Til að sækja tölvupóst handvirkt skaltu velja
Handvirkt val
. Til að
leyfa aldrei móttöku margmiðlunarboða og auglýsinga skaltu velja
Óvirk
.
Leyfa nafnl. skilaboð
— Til að hafna skilaboðum frá óþekktum sendanda skaltu
velja
Nei
.
Fá auglýsingar
— Til að tilgreina hvort þú vilt leyfa móttöku margmiðlunarboða
sem innihalda auglýsingar.

38
Tilkynning um skil
— Ef þú vilt að staða sendra skilaboða (
Bíður
,
Mistókst
eða
Skilað
) birtist í
Tilkynningar
skaltu velja
Já
. Hugsanlega geturðu ekki fengið
skilatilkynningar um margmiðlunarboð sem hafa verið send á tölvupóstfang.
Neita sendingu tilk.
>
Já
— Til að hafna því að skilatilkynningar séu sendar.
Gildistími skilaboða
(sérþjónusta) — Ef ekki næst í viðtakanda skilaboðanna
á gildistímanum er boðunum eytt úr margmiðlunarboðastöðinni.