Nokia 5700 XpressMusic - Venjulegt símtal

background image

Venjulegt símtal

1. Sláðu inn svæðis- og símanúmerið í biðstöðu. Styddu á hreinsitakkann til að

fjarlægja tölu.

Þegar hringt er til útlanda skaltu styðja tvisvar á * til að fá fram alþjóðlega
forskeytið (+ kemur í stað alþjóðlega svæðisnúmersins) og slá inn
landsnúmerið, svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og svo símanúmerið.

2. Styddu á hringitakkann til að hringja í númerið.

Til að stilla hljóðstyrk meðan á símtali stendur skaltu styðja
á hljóðstyrkstakkana.

3. Styddu á hætta-takkann til að leggja á eða hætta við að hringja.

1

2

background image

22

Til að hringja úr

Tengiliðir

skaltu velja

Valmynd

>

Tengiliðir

. Skrunaðu að

tilteknu nafni eða sláðu inn fyrstu stafi nafnsins og skrunaðu að nafninu.
Styddu á hringitakkann til að hringja í númerið.

Til að hringja í talhólfið (sérþjónusta) skaltu halda 1 inni þegar síminn
er í biðstöðu. Tilgreina verður númer talhólfs til að hægt sé að hringja í það.
Sjá Talhólf á bls. 72.

Til að hringja í nýlega valið númer skaltu styðja á hringitakkann í biðstöðu.
Listi yfir þau 20 númer sem þú hefur hringt í eða reynt að hringja í birtist.
Skrunaðu að númerinu sem þú vilt hringja í og styddu á hringitakkann.

Til að hringja kallkerfissímtal, sjá Kallkerfi á bls. 88.