
Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda
Þar sem síminn þarf að vera tengdur við þriðju kynslóðar farsímakerfi (UMTS) til
að hægt sé að nota
Samn. hreyfim.
veltur
Samn. hreyfim.
á því hvort slíkt símkerfi
sé til staðar. Upplýsingar um farsímakerfi og gjald fyrir notkun forritsins fást hjá
þjónustuveitunni. Til að hægt sé að nota
Samn. hreyfim.
þarftu að gera
eftirfarandi:
• Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir tengingar á milli
einstaklinga.
• Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu og sért innan
dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Ef þú byrjar samnýtinguna meðan þú ert innan
UMTS-farsímakerfis og skipt er yfir í GSM-farsímakerfi, lýkur samnýtingunni
en símtalið heldur áfram.
• Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og viðtakandinn séu skráðir
á UMTS-símkerfið. Ef þú býður einhverjum í samnýtingu og slökkt er á síma
viðkomandi aðila eða hann er ekki innan UMTS-þjónustusvæðis veit hann ekki
að þú ert að senda honum boð. En þú færð villuboð um að viðtakandinn geti
ekki samþykkt boðið.