Nokia 5700 XpressMusic - Notkunarskrá

background image

Notkunarskrá

Í notkunarskránni geturðu skoðað upplýsingar um símtöl, textaskilaboð,
pakkagagnatengingar og fax- og gagnasímtöl sem síminn hefur skráð.

Tengingar við ytra pósthólfið þitt, skilaboðastöð margmiðlunarboða eða vefsíður
eru sýndar sem gagnasendingar eða pakkagagnatengingar í almennu
notkunarskránni.

Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu kunna að
vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga,
sköttum og öðru slíku.

Til athugunar: Sumir tímamælar, þar á meðal taltímamælir, kunna að verða
endurstilltir við uppfærslu á þjónustu eða hugbúnaði.