Nokia 5700 XpressMusic - Myndsímtali komið á

background image

Myndsímtali komið á

Í myndsímtali geta þú og viðmælandi þinn séð rauntíma hreyfimynd hvor af
öðrum. Viðtakandi þinn sér þá hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.

Til að geta átt myndsímtal þarftu að vera með USIM-kort og vera innan
þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
myndsímtalsþjónustu og áskrift að henni. Aðeins er hægt að koma á myndsímtali
við einn aðila í einu. Hægt er að koma á myndsímtali við samhæfan farsíma eða
ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á myndsímtölum þegar annað símtal,
myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.

Tækinu berst ekki hreyfimynd (annaðhvort sendir viðtakandinn ekki

hreyfimyndina eða símkerfið sendir hana ekki).

Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.

background image

25

1. Sláðu inn númerið í biðstöðu eða veldu

Valmynd

>

Tengiliðir

og skrunaðu

að viðkomandi tengilið.

2. Veldu

Valkostir

>

Hringja

>

Myndsímtal

.

Það getur tekið smástund að koma á myndsímtali.

Bíð eftir hreyfimynd

birtist.

Ef ekki tekst að koma á tengingu, (t.d. ef símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft), er spurt hvort þú viljir hringja venjulegt símtal
eða senda textaskilaboð í staðinn.

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær hreyfimyndir og heyrt hljóð
úr hátalaranum. Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu og þá heyrir þú
í honum og sérð e.t.v. kyrrmynd eða gráan bakgrunn. Ef síminn er í símastöðu
þegar myndsímtal fer fram skaltu snúa neðri hluta símans þannig að
myndavélarlinsan snúi að þér svo að viðmælandi þinn sjái framan í þig eða
snúa neðri hlutanum frá þér til að sýna umhverfi þitt.

Ýttu á hljóðstyrkstakkana til að auka eða minnka hljóðstyrkinn meðan
á símtali stendur.

Til að velja á milli þess að sýna hreyfimyndir eða að heyra einungis hljóð skaltu
velja

Virkja

eða

Óvirkja

>

Hreyfimynd

,

Hljóð

eða

Hljóð & hreyfimynd

.

Til að stækka eða minnka myndina af þér skaltu velja

Stækka

eða

Minnka

.

Stækkunar/minnkunarvísirinn sést efst á skjánum.

Hægt er að víxla hreyfimyndunum sem hafa verið sendar eða tekið hefur verið
á móti á skjánum með því að velja

Víxla myndum

.

Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali verður tekið gjald fyrir
símtalið sem myndsímtal. Fáðu verðupplýsingar hjá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni.

Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á hætta-takkann.