■ Valmynd
Úr valmyndinni er hægt að komast í aðgerðir símans. Til að opna aðalvalmyndina
skaltu ýta á valmyndartakkann; hér eftir tilgreindur sem „veldu
Valmynd
“.
Til að opna aðgerð eða möppu skaltu skruna að henni og styðja á skruntakkann.
Útliti valmyndarinnar er breytt með því að velja
Valmynd
>
Valkostir
>
Skipta um
útlit
og útlit valmyndar.
Ef röð aðgerða er breytt í valmyndinni getur hún verið önnur en hin sjálfgefna röð
sem lýst er í þessari notendahandbók.
Til að loka aðgerð eða möppu skaltu velja
Til baka
og
Hætta
eins oft og þörf er til
að fara til baka í biðstöðu eða velja
Valkostir
>
Hætta
.
Til að skipta milli opinna forrita skaltu velja
Valmynd
og halda takkanum inni.
Skiptigluggi forrita opnast þá með lista yfir þau forrit sem eru opin. Skrunaðu að
forriti og veldu það.
Til að merkja og afmerkja atriði skaltu styðja á #. Til að merkja eða afmerkja
nokkur atriði í röð skaltu halda # inni og skruna upp eða niður.
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.