Ótengt snið
Sniðið
Ótengdur
leyfir að síminn sé notaður þótt hann sé ekki tengdur. Þegar
sniðið
Ótengdur
er virkt er slökkt á þráðlausu tengingunni og það er sýnt með
á sendistyrkssvæðinu. Komið er í veg fyrir að RF-merki berist til eða frá símanum
og hægt er að nota símann án (U)SIM-korts. Nota skal ótengda sniðið á stöðum
sem eru viðkæmir fyrir útvarpsbylgjum—um borð í flugvélum eða á sjúkrahúsum.
Hægt er að hlusta á tónlist í tónlistarspilaranum þegar síminn er ótengdur.
Til að fara úr ótengda sniðinu skaltu ýta á rofann og velja annað snið.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra
valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að
hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst að
virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá
inn lykilnúmerið.