Nokia 5700 XpressMusic - Opnunarlyklar

background image

Opnunarlyklar

Stafræn réttindi

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að
vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki er hægt að opna efni sem er
verndað með WMDRM 10, OMA DRM 2.0 og OMA DRM 1.0. Ef tiltekinn stafrænn
hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks
hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænum réttindum sé endurvakin.
Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu.
Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er verndað með öðrum
gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.

background image

100

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir opnunarlykill sem tilgreinir hvernig
hægt er að nota efnið.

Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite
til að taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu. Ef notaðar eru aðrar
flutningsaðferðir er ekki víst að opnunarlyklarnir, sem þarf að endursetja ásamt OMA
DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, verði fluttir með efninu. Einnig gæti
þurft að endursetja opnunarlyklana ef skrár í tækinu skemmast.

Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt opnunarlyklum þess ef minni
tækisins er forsniðið. Einnig gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár í tækinu
skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota
efnið aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að opna
verndaða efnið ef SIM-kortið er í tækinu.

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Gagnastjóri

>

Opn.lyklar

til að skoða opnunarlykla

stafrænna réttinda sem eru geymdir í símanum þínum.

Til að skoða gilda lykla ( ) sem eru tengdir einni eða fleiri miðlunarskrá skaltu
velja

Gildir lyklar

. Lyklahópur, sem inniheldur nokkra lykla, er sýndur með

.

Til að sjá lyklana í lyklahópnum skaltu velja lyklahópinn.

Til að skoða ógilda lykla (

) þar sem notkunartími skráarinnar er útrunninn skaltu

velja

Ógildir lyklar

. Til að kaupa meiri notkun eða lengja notkunartíma skráarinnar

skaltu velja ógildan lykil og

Valkostir

>

Sækja nýjan lykil

. Ekki er víst að hægt sé að

uppfæra opnunarlykla ef móttaka vefþjónustuboða er óvirk. Sjá Stillingar
þjónustuboða á bls. 39.

Til að skoða opnunarlykla sem eru ekki í notkun skaltu velja

Lyklar án notk.

.

Engar skrár eru tengdar ónotuðum opnunarlyklum.

Til að skoða nákvæmar upplýsingar, svo sem gildistíma og hvort hægt sé að senda
skrána, skaltu skruna að opnunarlykli og velja hann.