■ Kallkerfi
Í kallkerfi (sérþjónusta) er um að ræða símtal yfir kallkerfisþjónustu í rauntíma
(sérþjónusta) sem komið er á með GSM/GPRS-símkerfi. Í kallkerfinu er komið
á beinu talsambandi með því að styðja á einn takka.
Áður en kallkerfisþjónusta er tekin í notkun þarf að tilgreina aðgangsstað
þjónustunnar og stillingar fyrir kallkerfið.
Í kallkerfissamskiptum talar einn aðili en hinir hlusta. Notendur skiptast á að svara
hver öðrum. Aðeins einn í hópnum getur talað í einu. Aðeins er hægt að tala
í tiltekinn tíma.
Símtöl hafa ávallt forgang fram yfir samtöl um kallkerfi.
Að pakkagagnateljaranum undanskildum skráir síminn aðeins tveggja manna tal
í listanum yfir nýleg símtöl í
Notkunarskrá
. Þátttakendur í samtali ættu að
staðfesta móttöku samskipta þar sem það á við þar sem ekki er um aðra
staðfestingu að ræða á því að þeir hafi heyrt hringinguna.
Þjónustuveitan veitir upplýsingar um framboð, kostnað og áskrift að þjónustunni.
Hafa ætti í huga að reikiþjónusta kann að vera takmarkaðri en gerist með símtöl
um heimasímakerfið.
Mikill hluti þeirrar þjónustu sem stendur til boða í hefðbundnum símtölum
(svo sem talhólf) er ekki til staðar í samskiptum um kallkerfi.
89