Nokia 5700 XpressMusic - Bluetooth-tenging

background image

Bluetooth-tenging

Bluetooth-tækni heimilar þráðlausa tengingu á milli rafeindatækja sem eru í allt
að 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Bluetooth-tengingu má nota til að
senda myndir, myndskeið, texta, nafnspjöld eða minnispunkta dagbókar, sem og
til að tengjast við samhæf Bluetooth-tæki, svo sem við tölvur.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 sem styður eftirfarandi snið: Dial Up
Networking, Serial Port, File Transfer, Handsfree, Headset, Basic Imaging, SIM Access,
Generic Access og Advanced Audio Distribution. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja
sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa
tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta
tæki.

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum. Kanna skal það hjá
yfirvöldum á staðnum eða þjónustuveitunni.

background image

86

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan
aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu rafhlöðunnar.