![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia 5700 XpressMusic/is/Nokia 5700 XpressMusic_is077.png)
Símtöl
Senda mitt númer
(sérþjónusta) — Til að símanúmerið þitt birtist (
Já
) eða birtist
ekki (
Nei
) þeim aðila sem þú hringir í. Þjónustuveitan getur sett upp stillinguna
þegar þú gerist áskrifandi að þjónustunni. (
Stillt af símkerfi
).
Símtal í bið
(sérþjónusta) — Til að símkerfið láti þig vita ef hringt er í þig á meðan
þú ert að tala í símann. Til að senda beiðni til símkerfisins um að gera þjónustu
símtala í bið virka skaltu velja
Gera virkt
. Til að senda beiðni til símkerfisins um að
gera þjónustu símtala í bið óvirka skaltu velja
Ógilda
. Til að kanna hvort þjónustan
er virk skaltu velja
Athuga stöðu
.
![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia 5700 XpressMusic/is/Nokia 5700 XpressMusic_is078.png)
78
Hafna símtali með SMS
— Til að hægt sé að hafna símtölum með textaskilaboðum.
Sjá Símtali svarað eða hafnað á bls. 23.
Texti skilaboða
— Til að slá inn texta sem á að senda þegar þú hafnar símtali með
textaskilaboðum.
Mynd í myndsímtali
— Til að velja að kyrrmynd birtist í stað hreyfimyndarinnar
þegar þú hafnar myndsendingu í myndsímtali.
Sjálfvirkt endurval
— Til að láta símann gera allt að tíu tilraunir til að hringja aftur
í númer sem ekki náðist samband við. Styddu á hætta-takkann til að gera
sjálfvirka endurvalið óvirkt.
Sýna lengd símtala
— Til að láta símann birta lengd yfirstandandi símtals.
Samantekt e. hring.
— Til að láta símann birta í stutta stund áætlaða lengd síðasta
símtals.
Hraðval
>
Virkt
— Til að láta símann hringja í númerin sem úthlutað hefur verið
á hraðvalstakkana 2 til 9 með því að halda inni viðkomandi talnatakka.
Takkasvar
>
Virkt
— Til að geta svarað símtölum með því að styðja stuttlega
á hvaða takka sem er, nema hægri og vinstri valtakkana, hljóðstyrkstakkana,
rofann og hætta-takkann.
Lína í notkun
(sérþjónusta) — Þessi stilling sést aðeins ef SIM-kortið styður tvö
númer í áskrift, þ.e. tvær símalínur. Veldu hvora símalínuna (
Lína 1
eða
Lína 2
) þú
vilt nota til að hringja og senda skilaboð.
Hægt er að svara símtölum á báðum línum, án tillits til þess hvor línan er valin. Þú
getur ekki hringt ef þú velur
Lína 2
og ert ekki áskrifandi að þeirri sérþjónustu. Til
að hindra val á línum skaltu velja
Línuskipting
>
Gera óvirka
ef SIM-kortið styður
það. Til að breyta þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.