Nokia 5700 XpressMusic - (U)SIM korti og rafhlöðu komið fyrir

background image

(U)SIM korti og rafhlöðu komið fyrir

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Þessi sími notar BP-5M rafhlöður.

Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta getur
verið þjónustuveitan eða annar söluaðili.

1. Þegar bakhlið símans er opnuð í fyrsta sinn skal lyfta henni upp með

plastræmunni sem sýnd er aftan á símanum (1). Síðan má fjarlægja plastið.

Þegar bakhliðin er opnuð síðar skal snúa neðri hluta símans um 90 gráður til
hægri eða vinstri, þegar talnatakkarnir á neðri hlutanum eru á sömu hlið og
skjárinn, og lyfta bakhliðinni upp (2). Fjarlægðu rafhlöðuna með því að lyfta
henni upp (3).

2. Til að losa SIM-kortsfestinguna skaltu renna henni aftur (4) og lyfta

svo upp (5).

Settu (U)SIM-kortið í SIM-kortsfestinguna (6). Gakktu úr skugga um að
(U)SIM-kortið sitji rétt og að gyllti snertiflöturinn á því vísi niður og skáhornið
vísi upp.

background image

11

Lokaðu SIM-kortsfestingunni (7) og ýttu henni fram svo að hún læsist (8).

3. Settu rafhlöðuna á sinn stað (9). Settu bakhliðina aftur á sinn stað (10) og (11).